Að taka þjóðarpúlsinn rétt

Þróun mótmælaumrótsins í samfélaginu síðustu daga bendir til þess að það séu nýir hópar sem nú eru mest áberandi á Austurvelli. En því miður eru engar mælingar til á því hvernig sorgarferlið (þ.e. áfallið, reiðin, lömunin og að lokum vonandi sáttin) leggst á ólíka þjóðfélagshópa á ólíkum tímum frá Hruni og hvaða fólk það er sem er að ganga í gegnum mismunandi stig í þessu ferli á mismunandi tímum. Það er því erfitt að bregðast við og spá fyrir um þróun mála. Þó auðvita væri slíkt mögulegt ef þjóðarpúlsinn væri tekinn á vísindalegan hátt með jöfnu millibili.

pek pinneÞjóðarsálin margumtalaða er nefnilega mikil einföldun. Það sem skiptir máli í mati á ástandi þjóðarinnar er hvaða hópar það eru á hverjum tíma sem ganga í gegnum ólíka hluti og hlutfalla fólks sem er að ganga gegnum ákveðna hluti á ákveðnum tímum.

Sú tilhneiging að nota fyrsta hópinn sem var mest áberandi á Austurvelli í vetur sem einhverskonar mælingu á því hvar "þjóðarsálin" er stödd í sorgarferlinu, er einföldun byggð á misskilningi.


mbl.is Verða 73 þúsund heimili eignalaus?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband