Ómaklega vegið

Ómaklega er hér vegið að Sikiley og því fólki. 

Vonandi eru píratar ekki að fylkja liði með þeim öflum sem reyna að þinga alias þvinga íslendinga inní þetta umsóknarferli. Við vorum aldrei spurð að því hvort við vildum sækja um aðild. Því miður.  


mbl.is Segir Skagafjörð „Sikiley Íslands“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þessu máli öllu var þvingað uppá þjóðina

þvinga
Gott að þessu sé lokið.

Þessu ESB máli var þvingað alias þingað uppá þjóðina þegar hún var í áfalli eftir hrun keðjubréfahagkerfisins.

Það var skandall að bera það ekki upp við þjóðina hvort fara ætti í umsóknarviðræður við ESB alias EU við þessar aðstæður.

Ferlið var aldrei trúverðugt fyrir vikið og sundraði fólki þegar virkilega var þörf á að standa saman.

 

 Nú er þessu sem betur fer lokið.

 Ef sótt verður um aftur á spyrja þjóðina fyrst.


mbl.is Ísland ekki lengur umsóknarríki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eina eða tvær Landsvirkjanir?

þjóðarskútan

Hópurinn TilVarnar / InDefence kemur hér með glögga greiningu að vanda.

Ætla stjórnvöld á Íslandi að láta keðjubréfahagkerfið draga þjóðarskútuna í djúpið?

 

Eða eins og Úlfarnir sungu hér um árið:

 

Áfram þjóðar skútan skríður

skellur brim á kinnungum

beljar sjór á báðar síður

brátt í undirdjúpin líður

 


Inga Dóra Sigfúsdóttir - peningana heim!

IDS

Inga Dóra Sigfúsdóttir prófessor við Háskólann í Reykjavík réri í dag heim glæsilegum Evrópustyrk uppá 300.000.000 ísl. kr. Það eru örfáir íslenskir vísindamenn sem státa af slíku!

STÓRGLÆSILEGT!

 

Við, samstarfsfólk Ingu Dóru við Karolinska Institutet í Svíþjóð, óskum henni innilega til hamingju og erum stolt af henni.


Móðgun

Náttúrupassi fyrir íslendinga er gróf móðgun. Auðvita á að vera nóg að sýna persónuskilríki með íslenskri kennitölu til að sanna rétt sinn til að skoða landið sitt.

http://is.wikipedia.org/wiki/Almannar%C3%A9ttur

almannaréttur

 


mbl.is Vegið stórlega að almannarétti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þórarinn Eldjárn

karlsdrapa[1]

drapa_torhildar_drott[1]

 

Þórarinn Eldjárn er líklegur sem næsti forseti Íslands.

Lítillátur, ljúfur og kátur og kann sig hvar sem er.


mbl.is Ólafur myndi tapa fyrir Jóni Gnarr
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Háskóli eða Bændaskóli ?

Eiga sveitastjórnamenn í einstökum sveitafélögum og samtök bænda að ráða þróun háskólamála á Íslandi? Háskólasamfélagið í samstarfi við ráðuneyti menntamála í landinu verður að taka af skarið í þessu máli, ef Bændaskólinn (eins og hann hét áður), á að vera háskóli (University). Hinsvegar er auðvita ekkert að því að stofna aftur Bændaskóla og þar eiga bændur auðvita að fá að ráða.

Fréttin hér að neðan sem birtist á heimasíðu RUV er ástæða færslunar:

 askell_thorisson_hvanneyri_nemendagardar_

Mynd: Áskell Þórisson

"Tíu störf við Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri verða lögð niður um næstu mánaðmót. Björn Þorsteinsson rektor greindi starfsmönnum frá þessu nýlega. Sagt er frá þessu í Bændablaðinu og rætt við Björn sem segir að viðkomandi starfsmenn hætti um áramótin.

Ekki er búið að segja starfsfólki hverjir missa vinnuna. Landbúnaðarháskólinn þarf að greiða ríkinu tugi milljóna til baka í ár og næsta ár. Mikið hefur verið rætt um að sameina Landbúnaðarháskólann og Háskóla Íslands síðustu misseri og vilji rektors og menntamálaráðherra stendur til þess en sveitarstjórnarmenn í Borgarbyggð og Bændasamtök Íslands hafa verið mótfallin sameiningu. 

Lektor við háskólann segir stóran hluta starfsmanna hafa áhyggjur af fyrirhuguðum uppsögnum. Andrúmslöftið sé erfitt og íþyngjandi. Þá hafi starfsfólkið miklar áhyggjur af framtíð þeirra fræðasviða sem skólinn hýsi og möguleika skólans til að fá fólk til að sinna rannsóknum og kennslu. Hugmyndir um að sameina skólann Háskóla Íslands hafa ekki orðið að veruleika. 

Yfir þrír fjórðu hlutar akademískra starfsmanna Landbúnaðarháskóla Íslands skoruðu í apríl á ráðherra menntamála, rektor Landbúnaðarháskólans og allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis að klára sameiningarferli Landbúnaðarháskóla Íslands og Háskóla Íslands. Þar sagði að með sameiningu megi styrkja stöðu landbúnaðar- og umhverfisrannsókna og kennslu með hag nemenda og fræðasviða Landbúnaðarháskólans að leiðarljósi. Mikill samdráttur hafi þegar átt sér stað í fjárveitingum til Landbúnaðarháskólans og akademískir starfsmenn uggandi yfir stöðu mála."


Færeyingar eru líka íslendingar

Vestamannaeyingar og Færeyingar; allt eru þetta íslendingar.

Norrænt sambandsríki?

Norrænt sambandsríki er ekki útilokað. En það verður vonandi ekki sótt um slíkt ferli án þess að bera það fyrst undir þjóðina. Að þinga alias þvinga málum uppá þjóðina er ekki gott.  
Íslenska þjóðin fékk aldrei að taka um það ákvörðun að sækja um aðild að ESB. Þeirri ákvörðun var þingað alisa þvingað uppá íslensku þjóðina þegar flestir voru í áfalli eftir erfitt efnahagshrun.


mbl.is Vilja frekar norrænt sambandsríki en ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ófá

Spurt var: "Kann að vera að Evrópumálin séu ekki fallin til vinsælda og að það eigi sinn þátt í að flokkurinn mælist ekki með meira fylgi?"

Össur velur að svara þessari mikilvægu spurningu með útúrsnúningum.

En við erum ófá á vinstrivængnum sem teljum að það sé mikið til í þessu.

Samfylkingin á ekkert erindi aftur sem sameiningarflokkur félagshyggjufólks á Íslandi (eins og  til var tjaldað þegar Ólafur Ragnar Grímsson hélt í strengina) meðan flokkurinn gerir ekki upp við EU málið.


mbl.is Samfylking fari í naflaskoðun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Viðbóta upplýsingar

Án þess að taka afstöðu með einum eða neinum í þessari umræðu er vert að eftirfarandi viðbóta upplýsingar komi fram (National Cancer Institute):

"It is important to note, however, that most research related to BRCA1 and BRCA2 has been done on large families with many individuals affected by cancer. Estimates of breast and ovarian cancer risk associated with BRCA1 and BRCA2 mutations have been calculated from studies of these families. Because family members share a proportion of their genes and, often, their environment, it is possible that the large number of cancer cases seen in these families may be due in part to other genetic or environmental factors. Therefore, risk estimates that are based on families with many affected members may not accurately reflect the levels of risk for BRCA1 and BRCA2 mutation carriers in the general population. In addition, no data are available from long-term studies of the general population comparing cancer risk in women who have harmful BRCA1 or BRCA2 mutations with women who do not have such mutations. Therefore, the percentages given above are estimates that may change as more data become available."

 http://www.cancer.gov/cancertopics/factsheet/Risk/BRCA


mbl.is ÍE vill ná til allra arfbera
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flugurækt

fluguræktSteingrímur veit vel hvað hann syngur. En nú er um að gera að festast ekki í varnarsigrunum og byggja upp raunhagkerfið til að fylla upp í holrýmið sem keðjubréfahagkerfi frjálshyggjunnar skyldi eftir sig.
Einn slíkur möguleiki er flugurækt. Starfsemi flugubúa hlýtur að vera tilvalin á Íslandi þar sem jarðvarmi er nægur og fiskislor aðgengilegt. Hægt er að framleiða allt það fóður sem þarf til að rækta fisk í stórum stíl.


mbl.is Væntingar kjósenda óraunhæfar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að draga flein úr holdi

ESB umsóknin var sá fleinn sem rekinn var í samstarf félagshyggjufólks á Íslandi. Umsókn sem þvinguð var fram þegar þjóðin var ennþá í sárum á gjörgæsludeild. Þar er undirrót þeirrar óeiningar og sundrungar sem splundraði félagshyggjufólki í þessum kosningum. Þegar sá fleinn verður dreginn úr þjóðarholdinu mun félagshyggjufólk sameinast aftur og flykkja liði í næstu kosningum. Félagshyggjufólk er ríflega helmingur þjóðarinnar og það finnst í flestum flokkum.

En nú er það heilög skylda okkar allra óháð flokkum að vinna saman með þeirri ríkisstjórn sem tekur við stjórnartaumunum og vinna þjóðinni heill. Ísland stendur vel sem sjálfstæð pólitísk og efnahagsleg eining milli stórra bandalaga. Fríverslunarsamningurinn við Kína er dæmi um það og það er arfur frá fráfarandi vinstristjórn, sem getur ef vel er á haldið, opnað marga möguleika.


mbl.is „Þetta fylgishrun varð fyrr“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nemendur styðji aldraða við tölvunotkun

Digital%20Champions%20image%20440x210Verið er að vinna að gerð tillögu um stuðning við aldraða í tölvumálum. Hugmyndin er að nemendur á mismunandi skólastigum veiti öldruðum ókeypis stuðning varðandi tölvunotkun og internetið.

Gert er ráð fyrir að þróa námskeið í tölvukennslu við nokkra skóla. Námið verður að stórum hluta verklegt og felst m.a. í því að nemendur fara heim til aldraðra og veita stuðning undir handleiðslu kennara.

 Nemendur fá einingar fyrir námskeiðið og aldraðir fá aðstoð við að nota tölvur.

Það er stórt og vaxandi lýðræðislegt vandamál að aldraðir einangrast frá samfélagi sem byggir á tölvuvæðingu og tækni sem þróast svo hratt að erfitt er fyrir aldraða að fylgjast með. 

 


Karlmennskugildran - íslensk rannsókn

Karlmennskugildin halda inn í dauðann.

lonely

Karlmenn eru mun ólíklegri til þess en konur að ræða um eigin yfirvofandi dauða við sérhæft starfsfólk sjúkrastofnanna. Þetta og margt annað kemur fram í grein sem ég skrifa í sænska dagblaðið Dagnes Nyheter í dag um einsemd karlmanna.

En það er hægt að komast út úr gildrunni. Hún er ekki skrifuð í stein.

Í greininni er m.a. fjallað um rannsóknir okkar Braga Skúlasonar sjúkrahúsprests á tjáskiptum karla og kvenna í tengslum við eigin dauða á Íslandi.

 

 

 


Searching for Sugar Man

Mæli eindregið með myndinni "Searching for Sugar Man" sem er tillefnd til Óskarsverðlauna í ár sem besta heimildamyndin.

Þetta er mynd um alvöru alþýðu-/verkalýðshetju og frábæran tónlistarmann með ótrúleg örlög. Ég sá hana í dag!
Styð Alþýðufylkinguna í komandi kosningum til Alþingis á Íslandi.

Æðsta viðurkenning SYS

Ynglingar

 

Sälskapet Ynglingaätten i Sverige(SYS) sendir íslendingum og alþýðu fólki nær og fjær árnaðaróskir í tilefni dagsins.

Sérstaklega fá Agnar bróðir og félagar í InDefence hópnum þakkir fyrir vel unnin störf í þágu okkar allra. Nöfn þeirra eru nú skráð í félagsbók Haugráðsins, sem er æðsta viðurkenning SYS.

 

Stjórn SYS lýtur á dóminn sem ákveðinn áfangasigur í baráttu alþýðufólks við markaðsdrauga "keðjubréfa-hagkerfisins".


mbl.is Ísland vann Icesave-málið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bein í nefinu Íslendingar?

Ummæli ÓRG um GB ber að sjá í samhenginu Icesave og komandi dómar:

Rosa Parks var lítil svört kona sem var stór gerandi í að velta þungu hlassi kynþátta mismununar.

 Ísland er lítið land sem þorði (allavega um tíma) að standa upp í hárinu á markaðsöflunum og segja "við borgum ekki".

En hvort við höfum bein í nefinu til að sitja áfram í sætinu og neita að flytja okkur þrátt fyrir löggur og lög. Það á eftir að koma í ljós.

Er litla Ísland í hlutverki Rosu Parks gagnvart markaðs/-keðjubréfa hagkerfinu. Við segjum nei við hagkerfi þar sem hringa vitleysa sem líkja má við keðjubréf og okurvexti, þenur út hagvaxtarbólur. Þar sem spilafíklar hirða gróðann en almenningur sleikir sárin þegar bólan springur. 

Sitjum við áfram í rútunni og neitum að færa okkur um fet þegar EU-löggan hótar, það spurningin?


mbl.is Forsetinn ræðst að Gordon Brown
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gamla grána


mbl.is Dauði viðræðnanna stórlega ýktur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Algert stríð ("fullskaligt krig")

Þar fauk friðurinn í hinu ný skreytta EU:

http://www.aftonbladet.se/senastenytt/ttnyheter/inrikes/article15909058.ab

 snus....ekki vegna mannréttinda eða tjáningarfrelsis eða útaf einhverju álíka mikilvægu máli....nei, nei... stríðið stendur um réttinn til að flytja út munntóbak (snus).

Ekki alveg hentugt orðaval að tala um "fullskaligt krig" nú þegar EU tekur á móti friðarverðlaunum.

En tóbaksiðnaðurinn er samur við sig.


mbl.is Friðurinn ekki sjálfsagður hlutur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband