6.10.2008 | 15:49
Það þurfti eitthvað slæmt að koma til
Auðvita vissu allir að það var mikið loft í íslenska efnahagskerfinu sem engin leið var að setja fingurinn á vegna þess að alþjóðlegi peningamarkaðurinn er meira og minna reglulaust skrímsli sem flæðir eins og amaba í allar áttir. Skrímsli sem stjórnast af tveim prinsippum, græðgi og hræðslu.
Það þurfti einfaldlega eitthvað slæmt að koma til svo ráðamenn allra landa gætu sameiginlega tekið á málinu og komið eðlilegum böndum á markaðinn. Það er einmitt það sem allir eru að vinna í núna.
Að sjálfsögðu hefði mátt fara í þessa vinnu áður, en mannskepnan er nú einu sinni þannig gerð að það er engin vilji til að taka sameiginlega á neinum málum fyrr en eitthvað alvarlegt gerist.
Geir: Staðan mjög alvarleg | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 2.11.2008 kl. 13:26 | Facebook