8.6.2009 | 21:43
Amma bjó í þessu húsi
Amma mín heitin, Guðrún Pálína Þorleifsdóttir bjó í þessu húsi um árabil þegar hún var ung stúlka. Hún var fædd 1890 og var frá Hornafirði. Amma kunni margar skemmtilega sögur að segja frá þessum tíma á Fríkirkjuvegi 11. Sumt þekkti ég aftur í bókinni sem Guðmundur Magnússon skrifaði um fyrirbærið "Thorsarar", en margt sagði hún mér sem Guðmundur hafði ekki talið vert að hafa með í bókinni, nema þá að hann hafi ekki vitað af því? En þetta er vel skrifuð bók!
Sjálfur var ég að hluta alinn upp í þessu húsi á unglingsárunum og þótti það afar leitt þegar Borgin afsalaði sér húsinu. Mér þóttu það því góð tíðindi þegar Ólafur F. Magnússon lagði það til í Borgarstjórn fyrir nokkru að borgin innkallaði eignina. Vona bara að lögreglan sýni stillingu svo engar skemmdir verði á húsinu.
Ruddust inn í Fríkirkjuveg 11 | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 10.6.2009 kl. 20:36 | Facebook