Óvinir í umferðinni

images[12]Á svipaðan hátt og heili barnsins lærir fyrir misskilning að óttast grís (sjá fyrri pistla um kvíða annarstaðar á blogginu) geta fullkomlega meinlausir einstaklingar orðið “hættulegir” í hugum okkar. Dæmi um slíkt er eftirfarandi:

Hæglætis maður sem aldrei gerir flugu mein svínar óvart fyrir þig í umferðinni. Stresshormónin spýtast út í blóðið og þú verður hræddur. Þú veist að bílar eru ekki hættulegir í sjálfu sér og þú veist líka af fyrri reynslu að flest fólk er ekki hættulegt. Heilinn getur því auðveldlega túlkað aðstæðurnar á þann hátt að þú hafir staðið augliti til auglitis gegnt lífshættulegum óvini.

 

Hann var nærri búinn að drepa mig = hann er óvinur = allir óþekktir bílstjórar eru líklegir óvinir.

Ljúflingurinn sem óvart beygði fyrir þig breytist þannig skyndilega í morðóðan fjanda og heilinn velur að túlka aðstæðurnar þannig að allir óþekktir bílstjórar séu mögulegir óvinir, svona til vonar og vara til að vera betur undirbúinn næst. Þetta sjálfvirka ferli virkaði ágætlega í frumskóginum hér áður fyrr en getur verið beinlínis hættulegt heilsu þinni og annarra í nútímasamfélagi.

 
mbl.is Ók fram úr skjaldböku á Skutulsfjarðarbraut á Ísafirði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Í kvöldfréttum ríkissjónvarpsins var talað við einhvern fræðing fyrir vestan um blessaða skjaldbökuna og á eftir kom fram að eigandinn hafði gefið sig fram en hann fær sko EKKI skjaldbökuna, fréttaþurrð á Íslandi  or what?

Ásdís Sigurðardóttir, 20.6.2007 kl. 22:21

2 Smámynd: Steingerður Steinarsdóttir

Systir mín á kanínu sem gaf sig fram á lögreglustöðinni í Kópavogi eftir að hafa strokið frá eigandanum. Hugsanlega var skjaldbakan á leið á næstu lögreglustöð.

Steingerður Steinarsdóttir, 21.6.2007 kl. 23:12

3 identicon

Takk fyrir þetta!

Lenti einmitt í þessari lífsreynslu í morgun. Keyrði á miljón framúr bílnum sem svínaði fyrir mig, flautaði og steytti hnefann framan í bílstjórann sem reyndist vera gráhærð eldri kona sem minnti á mömmu.

Skammaðist mín niður í tær!

Sigurður Jónsson (IP-tala skráð) 22.6.2007 kl. 13:49

4 Smámynd: Vilhelmina af Ugglas

Jú ætli maður þekki þetta ekki. Ég bregst nú samt ekki jafna harkalega við og Sigurður. Fæ bara aukinn hjartslátt, bölva og ragna og óska bílstjóranum norður og niður.

Vilhelmina af Ugglas, 23.6.2007 kl. 08:58

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband