Á heimleið í bloggfrí

Kæru vinir!

MI bokinMiklar umræður hafa geisað á bloggsíðunni minni um áfengismeðferðog hafa skeytin stundum verið hvöss og ásakanir á báða bóga. Sumar órökstuddar og aðrar vel rökstuddar með kvittunum og ljósmyndum.

Sjálfur lenti ég í þeirri aðstöðu að hýsa umræðuna á minni bloggsíðu án þess að hafa nokkuð til þess unnið annað en að skrifa grein um meðferðarnálgun sem hafnar alkóhólistastimplum sem nauðsynlegum hluta af meðferð og bata fólks sem ofnotar áfengi.

En svona er nú þetta bloggsamfélag. Maður má eiga von á hverju sem er ef maður heldur opnum möguleikanum að hver sem er geti skrifað athugasemdir.

freeÞó ég sé auðvita ekki ábirgur fyrir því sem aðrir skrifa í athugasemdum inná minni bloggsíðu finnst mér samt eins og að ég verði að halda að einhverju leiti utanum umræðuna. Því hef ég ákveðið að loka bloggsíðunni fyrir athugasemdum meðan ég bregð mér í bloggleyfi heim til Íslands þar sem ég ætla að vera fram yfir áramót.

Gleðileg Jól

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband