Kona – hvunndagshetja af mölinni!

sveitakonaHvunndagshetjur íslenskra bókmennta eru oft landsbyggðafólk sem brugðið hefur búi og flutt búferlum á mölina. Í þessum sögum mætir landsbyggðin hrokafullu borgarlífi en vinnur sigur að lokum. Minna hefur hinsvegar verið skrifað um hvunndagshetjurnar úr borginni, oftast konur, sem giftust bændum og fluttu í sveitina. Konur sem reyndu að aðlagast menningarheimi sem var þeim minnst líka framandlegur og borgin var sveitafólki. Konur sem neituðu að segja skilið við sitt borgaralega uppeldi og umhverfi þó örlögin flyttu þær úr borginni. Konur sem ruddu brautina fyrir nýja lífshætti og lífssýn til sveita á Íslandi. Auðvita urðu þær að aðlaga sig að sveitinni ekki síður en sveitafólkið þurfti að aðlaga sig að borginni og þær færðu margar fórnir. En þær sterkustu og einbeittustu neituðu að gerast sveitamenn og héldu áfram að vera borgarbörn í sveit. Þessar hvunndagshetjur af mölinni breyttu ásýnd sveita á Íslandi.
mbl.is Of lítill stuðningur og ónógar upplýsingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Good point. Takk fyrir ábendinguna. Ég þekki einmitt svona konur og þær hafa gert dreyfbýlinu gott eins og dreyfbýlingar gera borginni gott. Takk fyrir komment um mömmu, ég er sammála þér með að kveðja sæll lífdaga innan um sitt fólk er gott og mamma er tilbúin, við erum búnar að ræða þetta undanfarna mánuði, en samt er stundin alltaf erfið, annað væri ekki eðlilegt.

Ásdís Sigurðardóttir, 8.7.2007 kl. 19:40

2 identicon

Sæll og blessaður!  Viltist inn hjá þer, nú er eg forvitin frá hvaða bæ í Svarfaðardal ert þú góurinn????

unnur maría (IP-tala skráð) 8.7.2007 kl. 23:20

3 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Já, erlendar konur sem fluzt hafa í íslenzkar sveitir hafa haft víðtæk áhrif, eins og dæmin sanna. Þekki til margra og ber endalausa virðingu fyrir þeim. Íslenzkar alþýðukonur eru eitthvað það yndislegasta sem ég veit, í alvöru talað.

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 8.7.2007 kl. 23:24

4 Smámynd: Ásgeir Rúnar Helgason

Unnur María: Faðir minn Helgi Valdimarsson er uppalinn á Brautarhóli og amma hans er frá Gröf. Þegar Gröf losnaði fyrir nokkrum árum keypti hann og Guðrún Agnarsdóttir seinni kona hans jörðina og eru nú í óða önn að gera upp húsin með dyggri aðstoð Badda frá Brautarhóli. Guðrún brá sér líka í skógræktarnám og var að útskrifast sem skógræktarbóndi. Þau ætla svo að helga sig skógrækt í dalnum í ellinni. Sjálfur er ég alloft í Gröf og vill helst ekki annarstaðar vera.

Ásgeir Rúnar Helgason, 9.7.2007 kl. 07:48

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband